Kvistur endurnýjaði - svalir í þak
Tómasarhagi 42
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 727
10. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. maí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvisti á vestur- og austurhlið og setja upp nýjar svalir á þak við báða kvistina á húsi á lóð nr. 42 við Tómasarhaga. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. apríl 2019. Stækkun: 3,3 ferm., 10,4 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019 samþykkt.