Breyting inni - þrjár íbúðir
Bergþórugata 55
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 744
20. september, 2019
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. ágúst 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi allra hæða þannig að í húsinu verða 3 íbúðir, eldri svalir verða fjarlægðar og gluggar færðir nær upprunalegri gerð, nýjar svalir gerðar, sagað niður úr gluggum fyrir svalahurðir auk þess sem ný vinnustofa verður byggð á baklóð þar sem áður var skúr á lóð nr. 55 við Bergþórugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2019..
Niðurrif: 19,9 ferm., 41,8 rúmm. Vinnustofa: 45,2 ferm., 115,3 rúmm. Heildarstækkun: 25,3 ferm., 72,8 rúmm. Erindinu fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. ágúst 2019, varmatapsútreikningar mótt. 19. ágúst 2019, yfirlit yfir breytingar mótt. 19. ágúst 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2019.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102502 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007142