Breyting inni - þrjár íbúðir
Bergþórugata 55
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 730
31. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2019 var lögð fram fyrirspurn Garðars Snæbjörnssonar dags. 11. apríl 2019 varðandi endurnýjun og stækkun á núverandi bakhúsi á lóð nr. 55 við Bergþórugötu og gera þar litla tveggja herbergja íbúð, færa svalir á bakhlið húss til vegna breytinga á innri skipulagi og gera litla íbúð í kjallara hússins, samkvæmt uppdr. Kurt og Pí ehf. dags. 11. apríl 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2019.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2019 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102502 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007142