Breyting inni - þrjár íbúðir
Bergþórugata 55
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi allra hæða þannig að í húsinu verða 3 íbúðir, eldri svalir verða fjarlægðar og gluggar færðir nær upprunalegri gerð, nýjar svalir gerðar, sagað niður úr gluggum fyrir svalahurðir auk þess sem ný vinnustofa verður byggð á baklóð þar sem áður var skúr á lóð nr. 55 við Bergþórugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 27. nóvember 2019 til og með 30. desember 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hrafnhildur Sverrisdóttir dags. 29. desember 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. janúar 2020 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020.
Erindinu fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. ágúst 2019, varmatapsútreikningar mótt. 19. ágúst 2019, yfirlit yfir breytingar mótt. 19. ágúst 2019. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. september 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2019. Vinnustofa: 45,2 ferm., 115,3 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. febrúar 2020, samþykkt sbr. 1. mgr. 2. gr. heimildir við viðauka fyrir skipulagsfulltrúa nr. 759/2019.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102502 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007142