(fsp) rekstur veitingastaðar
Laugavegur 67
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn T.ark Arkitekta ehf. dags. 22. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.0 vegna lóðarinnar nr. 67A við Laugaveg. Í breytingunni felst stækkun hússins um 1 metra til austurs og heimilt verði að gera 1,2 metra djúpar svalir á húsið til suðurs, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf. dags. 16. mars 2019. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. febrúar 2019 og svar byggingarfulltrúa dags. 6. mars 2019 um að ekki verði gerð krafa um að setja lyftu í húsið. Tillagan var grenndarkynnt frá 23. apríl 2019 til og með 21. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

101 Reykjavík
Landnúmer: 101574 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017589