Nýir kvistir og svalir
Langagerði 22
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 747
18. október, 2019
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. október 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. október 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að bæta við tveimur kvistum á norður- og suðurhlið ásamt svölum og stiga niður í garð á 1. hæð í fjöleignarhúsi á lóð nr. 22 við Langagerði. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019.
Erindi fylgir afrit af eldri teikningum samþykktum 27. nóvember 1980 og fyrirspurnarteikningum dags. 24. apríl 2019. umboð eigenda íbúðar 01-0101 dags. 23. september 2019 og samþykki meðlóðarhafa áritað á A3 afrit af teikningum A-100 - A-101 dagsettum 3. september 2019. Stækkun: 3.6 ferm., 10.1 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019.