Nýir kvistir og svalir
Langagerði 22
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 794
23. október, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. október 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að bæta við tveimur kvistum á norður- og suðurhlið ásamt svölum og stiga niður í garð á 1. hæð í fjöleignarhúsi á lóð nr. 22 við Langagerði.
Erindi fylgir afrit af eldri teikningum samþykktum 27. nóvember 1980 og fyrirspurnarteikningum dags. 24. apríl 2019. umboð eigenda íbúðar 01-0101 dags. 23. september 2019 og samþykki meðlóðarhafa áritað á A3 afrit af teikningum A-100 - A-101 dagsettum 3. september 2019. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. október 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2020. Stækkun: 1.8 ferm., 9.1 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Langagerði 4, 6, 8, 20, 24, 30, 32 og 34.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.