Einbýlishús með aukaíbúð
Döllugata 4
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 726
3. maí, 2019
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. apríl 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús með auka íbúð og innbyggðum bílskúr úr CLT krosslímdum timbureiningum á staðsteyptum grunni á lóð nr. 4 við Döllugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2019.
Stærðir: A-rými: 344.4 ferm., 1.431.0 rúmm. B-rými: 3.9 ferm.
Nýtingarhlutfall: 0.50. Erindi fylgir lóðablað 5.113.7 dags. 21. febrúar 2008 og hæðablað Reynisvatnsás, Döllugata 2-10 og Gissurargata 1-7 dags. 11. mars 2008. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. mars 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2019. Gjald: kr. 11.200
Svar

Neikvætt.
Samræmist ekki deiliskipulagi, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2019.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214845 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101619