Starfsemi fyrir neyðarþjónustu
Grandagarður 1A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 718
1. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta neyðarskýli fyrir heimilislausa vímuefnaneytendur, koma fyrir hvíldaraðstöðu á 2. hæð, nýrri pallalyftu milli hæða, svölum með hringstiga á norðurhlið, byggð köld geymsla og komið verður fyrir nýju bílastæði á lóð nr. 1A við Grandagarð. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. febrúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skrifstofu sviðstjóra dags. 22. febrúar 2019, bréfi frá Lex lögmönum dags. 5 desember 2018. Jákvæð fyrirspurn BN055452 fylgir. Stækkun: 12 ferm., 31,2 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2019, samþykkt.