breyting á deiliskipulagi
Rökkvatjörn 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 727
10. maí, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Plúsarkitekta ehf. dags. 15. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 3 við Rökkvatjörn. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit fjölbýlishúss og fjölgun bílastæða úr 7 í 9 ásamt sleppistæði fyrir akstursþjónustu, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 12. apríl 2019.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Gæfutjörn 10, 12 og 14, Rökkvatjörn 6-8 og Jarpstjörn 6-8, 10, 12 og 14.
Vakin er athygli á að umsækjandi þarf að greiða fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

113 Reykjavík
Landnúmer: 226838 → skrá.is
Hnitnúmer: 10126419