breyting á deiliskipulagi
Blesugróf 34
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Gests Ólafssonar dags. 26. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Blesugrófar vegna lóðarinnar nr. 34 við Blesugróf. Í breytingunni felst að heimilt er að reisa tveggja hæða einbýlishús með aukaíbúð innan núverandi byggingarreits og með nýtingarhlutfalli 0,45, samkvæmt uppdr. Skipulags-, arkitekta-, og verkfræðistofunnar ehf. dags. 23. nóvember 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. febrúar 2019 til og með 4. apríl 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Húseigendur og hagsmunaaðilar í Blesugróf og Jöldugróf, undirskriftarlisti 32 aðilar, mótt. 28. mars 2019, Úti og inni arkitekta f.h. eigenda og íbúa Jöldugrófar 24 dags. 2. apríl 2019, íbúar í Bleikargróf, Blesugróf, Jöldugróf og Stjörnugróf, undirskriftalisti 49 aðilar, dags. 2. apríl 2019, Ingibjörg Lára Skúladóttir f.h. íbúa og eigenda Blesugrófar 16 dags. 3. apríl 2019 og Lagastoð lögfræðiþjónusta f.h. Fjóla ehf., Hrólfs Ölvissonar og Irmu Sjafnar Óskarsdóttur dags. 3. apríl 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. apríl 2019 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.