Bakbygging - salerni og útigeymsla
Vesturgata 29
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 721
22. mars, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. janúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta viðbyggingu við suðurhlið og byggja litla viðbyggingu á vesturhlið og koma þar fyrir snyrtingu og útigeymslu í húsi á lóð nr. 29 við Vesturgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 14. febrúar 2019 til og með 14. mars 2019. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 2,4 ferm., 6,4 rúmm. Umsagnir Borgarsögusafns dags. 30.10.2018 og Minjastofnunar Íslands dags. 22.10.2018 fylgja erindi ásamt samþykki aðliggjandi lóðarhafa áritað á teikningar. Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. janúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2019. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100441 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013675