breyting á deiliskipulagi
Lambastekkur 5-11
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 732
14. júní, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. maí 2019 var lögð fram umsókn Eggerts Antoníusar Ólafssonar dags. 20. maí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts I, neðra Breiðholts, vegna lóðarinnar nr. 5-11 við Lambastekk. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir bílgeymslu við norðurhlið hússins nr. 9 við Lambastekk ásamt breytingu á notkun núverandi bílgeymslu í vinnustofu og geymslu, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarps uppdr. Teiknistofu arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar ehf. dags. 20. maí 2019, br. 12. júní 2019. Einnig er lögð fram yfirlýsing eigenda að Lambastekk 7 dags. 27. febrúar 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

109 Reykjavík
Landnúmer: 111834 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014921