framkvæmdaleyfi
Rafstöðvarvegur 37A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 700
5. október, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Veitna ohf. dags. 21. september 2018 um framkvæmdaleyfi vegna lagningu hitaveitulagnar frá holu RV-41, sem er á lóð nr. 37A við Rafstöðvarveg, og inn í tengimannvirki sem liggur undir Höfðabakkabrú, samkvæmt teikningu Veitna ohf. ódags. Einnig er lögð fram verklýsing ódags., kostnaðaráætlun dags. 5. janúar 2017 og útboðslýsing dags. 20. september 2018 Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2018.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2018 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

Landnúmer: 227437 → skrá.is
Hnitnúmer: 10127859