Breytingar - lóðarfrágangur, gluggar, hurðir o.fl. sbr. BN055624
Lambhagavegur 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 716
15. febrúar, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram erindi Kristins Ragnarssonar dags. 7. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar-Halla, atvinnusvæði, vegna lóðarinnar nr. 7 við Lambhagaveg. Í breytingunni felst að stækka byggingareit á 1. hæð/jarðhæð um 10 metra til austurs allt að lóðarmörkum og stækkun um 10 metra á norður- og suðurhlið. Við þetta hækkar nýtingarhlutfall lóðar, samkvæmt uppdr. KRark dags. 12. júní 2018.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Lambhagavegur 1, 3, 9, 13, 15.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.6 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018. Grenndarkynning hefst þegar greitt hefur verið fyrir grenndarkynningu.

113 Reykjavík
Landnúmer: 211677 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097856