breyting á deiliskipulagi
Vonarstræti 4/Lækjargata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 724
12. apríl, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Björns Skaptasonar dags. 24. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Lækjargötu 10-12, Vonarstræti 4 og 4b, Skólabrú 2 vegna lóðarinnar nr. 4 við Vonarstræti. Í breytingunni felst að heimilt er að hækka mænishæð á þaki hússins og setja fimm nýja kvisti. Heimilt verður að útbúa fjögur ný hótelherbergi á breyttri þakhæð og mun hæðin samtengjast efstu hæð nýbyggingar er liggur samsíða henni, samkvæmt uppdr. Atelier Arkitekta slf. dags. 24. október 2018. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. júní 2018. Tillagan var auglýst frá 26. febrúar 2019 til og með 9. apríl 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

101 Reykjavík
Landnúmer: 100898 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015331