breyting á deiliskipulagi
Vonarstræti 4/Lækjargata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 707
30. nóvember, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. nóvember 2018 var lögð fram umsókn Björns Skaptasonar dags. 24. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Lækjargötu 10-12, Vonarstræti 4 og 4b, Skólabrú 2 vegna lóðarinnar nr. 4 við Vonarstræti. Í breytingunni felst að heimilt er að hækka mænishæð á þaki hússins og setja sex nýja kvisti. Heimilt verður að útbúa fjögur ný hótelherbergi á breyttri þakhæð og mun hæðin samtengjast efstu hæð nýbyggingar er liggur samsíða henni, samkvæmt uppdr. Atelier Arkitekta slf. dags. 24. október 2018. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. júní 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. XXXX.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100898 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015331