breyting á deiliskipulagi
Ljárskógar 29
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 716
15. febrúar, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. janúar 2019 var lögð fram umsókn Richards Ólafs Briem dags. 12. desember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis vegna lóðarinnar nr. 29 við Ljárskóga. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir sérstæða, tvöfalda bílageymslu í suðvesturhorni lóðarinnar og að breyta núverandi innbyggðri bílageymslu ásamt geymslurými á jarðhæð í íbúð, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 21. janúar 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hléskógum 19, 21, Ljárskógum 26, 27
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.6 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018. Grenndarkynning hefst þegar greitt hefur verið fyrir grenndarkynningu.

109 Reykjavík
Landnúmer: 113000 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019124