Viðbygging
Hörgshlíð 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 695
24. ágúst, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júní 2018 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja eldri viðbyggingu úr steinsteypu í stað timburs og stækka þaksvalir ofaná viðbyggingu við fjölbýlishús á lóð nr. 18 við Hörgshlíð. Erindi var grenndarkynnt frá 20. júlí 2018 til og með 17. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. maí 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2018.
Einnig fylgir samþykki meðeigenda dags. 26. mars 2018 áritað á uppdrátt. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107339 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023172