Tveir miðjukvistir, svalir og sólpall
Hörpugata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 683
1. júní, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. maí 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að gera tvo miðjukvisti á risþak, nýtt baðherbergi í risi, svalir og svalahurðir á 1. og 2. hæð í húsi nr. 3 við Hörpugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1.júní 2018.Stækkun 14,4 fermetrar og 50,1 rúmmetrar. Meðfylgjandi er afrit af umsögn um húsið úr bókum Borgarsögusafns. Gjald kr. 11.000)
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hörpugötu 1, 2, 4, 4a, 6 og 7, Góugötu 2 og Reykjavíkurvegi 27, 29 og 31.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106686 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023179