Stigagangur og bílakjallari - Mhl.01, 02 og 03.
Haukahlíð 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 882
1. september, 2022
Annað
‹ 488194
487421
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júlí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. júlí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílakjallara, mhl. 01 og tvo stigaganga undir mhl. 02 og 03, ásamt tveimur settum þriggja djúpgáma undir mhl. 12 og 13, þ.e. Valshlíð 1 sem er fimm hæða fjölbýlishús með 21 íbúð og Valshlíð 3 sem er fimm hæða fjölbýlishús með 33 íbúðum, í kjallara eru geymslur, hjólageymslur, inntaksrými og brunastúka milli húss og bílageymslu, vagnageymsla er á jarðhæð, djúpgámasett mhl. 12 og 13 eru vestan og sunnan við lóð nr. 2 við Haukahlíð. Einnig er lagt fram bréf ASK Arkitekta ehf. dags. 19. júlí 2022 og samgöngumat Eflu dags. 18. júlí 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. september 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 1. september 2022, samþykkt.

102 Reykjavík
Landnúmer: 223517 → skrá.is
Hnitnúmer: 10115323