breyting á deiliskipulagi
Seljavegur 1
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 845
15. nóvember, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Maison ehf. dags. 6. október 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 1 við Seljaveg. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja tveggja hæða hús með þremur smáíbúðum og útisvæðum á þaki ásamt því að setja tvö yfirbyggð bílastæði á norðurhluta lóðar við Nýlendugötu. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar og byggingarmagn eykst, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Studio Granda dags. 20. ágúst 2021.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100142 → skrá.is
Hnitnúmer: 10114056