breyting á deiliskipulagi
Seljavegur 1
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. september 2019 var lögð fram umsókn Richards Ólafs Briem dags. 26. ágúst 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 1 við Seljaveg. Í breytingunni felst að heimilt er að byggja nýbyggingu á lóð í stað þess að koma fyrir flutningshúsi, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 18. ágúst 2019. Einnig er lagður fram tölvupóstur Minjaverndar dags. 26. ágúst 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020. Einnig lagðir fram skuggavarps uppdráttur dags. 13. september 2019.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Nýlendugötu 34 og 45, Vesturgötu 54, 54a, 56 og 58 og Seljavegi 2.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100142 → skrá.is
Hnitnúmer: 10114056