breyting á deiliskipulagi
Tómasarhagi 24
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 721
22. mars, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. mars 2019 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Fálkagötureits vegna lóðarinnar nr. 24 við Tómasarhaga. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir bílgeymslu er sýndur á lóð í stað samþykktrar bílageymslu, samkvæmt uppdr. ARKHD dags. 8. mars 2018. Einnig er lagt fram bréf skrifstofu sviðsstjóra dags. 8. mars 2019.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Arnargötu 4 og Tómasarhaga 22, 27 og 29.
Vakin er athygli á að umsækjandi þarf að greiða fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106548 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023626