Viðbyggingar
Öldugata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 707
30. nóvember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. október 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvær viðbyggingar með þaksvölum við hús á lóð nr. 12 við Öldugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 31. október 2018 til og með 28. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Bréf með rökstuðningi um endurupptöku frá eigendum dags. 23. apríl 2018, afrit af tölvupósti SHS dags. 2. mars 2018, útlitsteikningar með undirritun eigenda nr. 10, 13 og 14 ódagsett fylgir með umsókn. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. febrúar 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. febrúar 2018. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2018. Erindinu fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 18.06.2018. Stækkun viðbygging: xxx ferm., xxx rúmm. Stækkun bílskúr: xxx ferm., xxx rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100574 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017032