breyting á deiliskipulagi
Funafold 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 696
31. ágúst, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2018 var lögð fram umsókn Sturlu Þórs Jónssonar dags. 19. júlí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Íbúðabyggðar norðan Grafarvogs - suðurhluti vegna lóðarinnar nr. 5 við Funafold. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit á vesturhlið hússins svo hægt verði að byggja garðskála og stækka bílskúrinn til norður innan byggingarreits, samkvæmt uppdr. Sturlu Þórs Jónssonar dags. 18. júlí 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Funafold 3, 7, 27, 29 og 31.
Vakin er athygli á að umsækjandi þarf að greiða fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

112 Reykjavík
Landnúmer: 110153 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010024