breyting á deiliskipulagi
Bríetartún 3-5
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 716
15. febrúar, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits 1.220.0 vegna lóðarinnar nr. 3-5 við Bríetartún. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit til norðausturs og auka nýtingarhlutfall þannig að heimilaðar verði þrjár hæðir með inndregni þakhæð sem snýr að Bríetartúni, en fimm hæðir að aukinni inndregni þakhæð á norðaustur hluta lóðar, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018. Einnig er lagt fram bréf THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018. Tillagan var auglýst frá 28. desember 2018 til og með 8. febrúar 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Veitur ohf. dags. 31. janúar 2019. Einnig lögð fram netsamskipti við Borgarsögusafn vegna húsakönnunar og fornleifaskráningar 28. desember 2018 -15. febrúar 2019.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102783 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000626