(fsp) - Fjölgun eigna
Fjólugata 19
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 746
4. október, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. október 2019 þar sem sótt er um leyfi fyrir þremur íbúðum í húsinu, auka salarhæð í kjallara, stækka bílskúr, breyta aðkomutröppum, stækka og sameina svalir á 2. hæð, fjarlægja skorstein og endurnýja þak, einnig er sótt um leyfi til að hækka þak og koma fyrir sorpgeymslu á lóð nr. 19 við Fjólugötu.
Stækkun: Kjallari: 50,3 ferm., 133,2 rúmm. 3. hæð: 57,2 ferm., 145,9 rúmm. Samtals eftir stækkun: 621,5 ferm., 1.8350,2 rúmm. Svalir stækkun: 1. hæð: 30,7 ferm. 2. hæð: 10,7 ferm. 3. hæð: 10,5 ferm. Samtals svalir eftir stækkun: 72,1 ferm. Jafnframt er erindi BN053919 dregið til baka. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 15. mars 2019, Umsögn burðarþolshönnuðar Verkís dags. 23. ágúst 2019 og minnisblað Verkís um brunahönnun dags. 11. september 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fjólugötu 17, 19a,19b, 21 og 21a, Sóleyjargötu 17, 19 og 21 og Laufásvegi 48 og 48a.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102203 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009913