nýtt deiliskipulag
Heklureitur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 825
16. júní, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu eru lagðir fram að nýju uppdrættir Yrki arkitekta ehf. dags. 1. febrúar 2021. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar við Laugaveg 168-176, þar sem gert er ráð fyrir að lóðin Laugavegur 176 verði nýtt undir gististarfsemi og verslun en aðrar lóðir á skipulagssvæðinu eru skilgreindar sem lóðir án heimilda. Forsendur varðandi frekar uppbyggingu á reitnum hafa breyst á þann veg að ekki náðust samningar við lóðarhafa og eigendur fasteigna á lóðum við Laugaveg 168-174. Í ljósi þess hafa orðið umtalsverðar breytingar á skipulagstillögunni sem nú er lögð fram frá skipulagslýsingu og markmiðum þess að lútandi. Á lóðinni við Laugaveg 176 verður heimilt að rífa bakhús og byggja við núverandi byggingar, sjá nánar tillögu. Tillagan var auglýst frá 9. apríl 2021 til og með 26. maí 2021. Eftirtaldir sendur athugasemdir/umsögn: íbúaráð Miðborgar og Hlíða dags. 29. apríl 2021, Local lögmenn f.h. Tannlækninga ehf., Tannheilsu ehf., Laser-Tannlæknastofu ehf og Sigfúsar Haraldssonar dags. 26. maí 2021 og Logos lögmannsþjónusta f.h. Vallhólma ehf., Dyrhólma hf og Hraunhólma ehf. dags. 26. maí 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. maí 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.