Tvíbýli
Lautarvegur 20
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 650
21. september, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2017 var lögð fram fyrirspurn Yrki arkitekta ehf. , mótt. 5. september 2017, um að breyta deiliskipulagi fyrir lóðirnar nr. 20 og 22 við Lautarveg sem felst í að fjölga íbúðum úr einni í þrjár á hvorri lóð, sleppa bílgeymslu og gera þess í stað íbúð í einnar hæða byggingu á þeim hluta byggingarreits, gera þakverönd ofan á einnar hæðar byggingu og breyta staðsetningu bílastæða, samkvæmt greinargerð Sólveigar Berg, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. september 2017.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2017.

103 Reykjavík
Landnúmer: 213573 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097715