Áður gerðar breytingar - viðbygging, breyting kjallara
Drekavogur 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 860
11. mars, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja gróðurhús við suðurhlið bílskúrs, breytingar á innra skipulagi kjallara og gerð er grein fyrir áður gerðri 21,9 ferm. viðbyggingu við vesturhlið bílskúrs á húsi nr. 18 á lóð nr. 18 við Drekavog. Erindi var grenndarkynnt frá 4. febrúar 2022 til og með 4. mars 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105146 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009272