(fsp) niðurrif og uppbygging
Garðastræti 14
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 726
3. maí, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. apríl 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja rishæð með kvistum á þrjá vegu og gera þar sjálfstæða íbúð í húsi á lóð nr. 14 við Garðastræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2019.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 11. mars 2019 og 2. apríl 2019, einnig afrit af umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2019 og samþykki meðeigenda dags. 25. mars 2019 og 22. mars 2019. Stækkun: 110,2 ferm., 33,7 rúmm. Gjald: kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Garðastræti 11, 13, 13a,15, 16 og 17, Bárugötu 2, 3 og 4 og Öldugötu 2.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100566 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010157