(fsp) niðurrif og uppbygging
Garðastræti 14
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 741
30. ágúst, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja rishæð með kvistum á þrjá vegu og gera þar sjálfstæða íbúð í húsi á lóð nr. 14 við Garðastræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 16. maí 2019 til og með 13. júní 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Gestur Ólafsson dags. 11. júní 2019 og Lilja Valdimarsdóttir og Pálmi Guðmundsson dags. 13. júní 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júní 2019 og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 11. mars 2019 og 2. apríl 2019, einnig afrit af umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2019 og samþykki meðeigenda dags. 25. mars 2019 og 22. mars 2019. Stækkun: 110,2 ferm., 33,7 rúmm. Gjald: kr. 11.200
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100566 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010157