Svalir - svalahurðir
Ásvallagata 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 644
11. ágúst, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. júli 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að steypa svalir með stálhandriðum á garðhlið og síkka gluggagöt til að koma fyrir hurð út á svalirnar á íbúðum 0201 og 0301 í húsinu á lóð nr. 15 við Ásvallagötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykki meðeigenda dags. 25. júní 2017 fylgir. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 13 og 17 og Blómvallagötu 11.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101275 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007330