erindi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
Sendistaðir hljóðvarps og sjónvarps
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 645
18. ágúst, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. júli 2017 var lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra, dags. 24. júlí 2017, (R17070076) ásamt erindi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins frá 14. júlí sl. þar sem ráðuneytið hvetur sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að tryggja varanlega og hentuga staðsetningu aðalsendistaða hljóðvarps og sjónvarps í Vatnsendahvarfi og Úlfarsfelli. Málið sendist umhverfis- og skipulagssviði til þóknanlegrar meðferðar. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Kynna formanni umhverfis- og skipulagsráðs.