breyting á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 16-32 við Fiskislóð og 39-93 við Grandagarð
Vesturhöfn, Línbergsreitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 710
4. janúar, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. október 2018 var lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf. dags. 19. september 2018 ásamt bréfi dags. 19. september 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar í Örfirisey vegna lóðanna nr. 16-32 við Fiskislóð og 39-93 við Grandagarð. Í breytingunni felst að núverandi húsnæði á reitnum, átta byggingar, sem byggðar voru sem iðnaðarhúsnæði á 9. og 10. áratug síðustu aldar, eru rifnar og í staðinn reistar tveggja til fimm hæða byggingar fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, mest skrifstofuhúsnæði, gert er ráð fyrir að svæðinu verði skipt í fimm lóðir/svæði, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 18. ágúst 2018. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. september 2018 og 13. nóvember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 3. desember 2018, umsögn samgöngustjóra dags. 18. desember 2018 og umsögn Minjastofnunar Íslandsdags. 18. desember 2018,
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.