framkvæmdaleyfi
Suðurlandsbraut 72-74
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 648
8. september, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Hans Olav Andersen, mótt. 11. júlí 2017, um breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 58-76 vegna lóða nr. 72-74. Í breytingunni felst að skilgreiningu á byggingarlínu á Suðurlandsbraut er breytt úr bundinni byggingarlínu yfir í byggingarlínu fyrir ytri byggingarreit. Staðsetja skal að lámarki 50% úthliðar byggingarinnar 1,2 m frá byggingarlínu að Suðurlandsbraut, samkvæmt uppdrætti teiknistofunnar Traðar, dags. 13. júlí 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 3. ágúst 2017 til og með 31. ágúst 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar