Svalir - 2. 3. og 4.hæð
Öldugata 53
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 695
24. ágúst, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. ágúst 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á bakhlið 2., 3. og 4. hæðar, gera sérnotaflöt fyrir íbúð 1. hæðar og koma fyrir fellistiga á fjölbýlishúsi á lóð nr. 53 við Öldugötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2017 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júní 2017. Jafnframt er erindi BN046007 dregið til baka. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 21. maí 2017. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Öldugötu 51 og 55 og Brekkustíg 12 og 14.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100354 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017062