Bílskúr
Drápuhlíð 36
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 647
1. september, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr við austurhlið lóðar upp við lóðarmörkum nr. 38 á lóð fjölbýlishúss nr. 36 við Drápuhlíð. Erindi var grenndarkynnt frá 30. júní 2017 til og með 28. júlí 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl. f.h. Ásgerðar Vigfúsdóttur, dags. 17. júlí 2017 og Steinar Jens Friðgeirsson, dags. 28. júlí 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. ágúst 2017 og er nú lagt fram að nýju.
Bréf frá hönnuði dags. 9. maí 2017 fylgir. Stærð bílskúr: 28,0 ferm., 85,4 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107217 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009252