Þrílyft verslunar- og íbúðarhús
Skólavörðustígur 36
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 673
16. mars, 2018
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arwen Holdings ehf. , mótt. 4. júní 2017, ásamt bréfi, dags. 19. júlí 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.4, Lokastígsreits 4, vegna lóðarinnar nr. 36 við Skólavörðustíg. Í breytingunni felst stækkun hússins, setja svalir á 2. og 3. hæð hússins og setja hjóla- og sorpgeymslu á baklóð, samkvæmt uppdr. ARKHD, dags. 20. nóvember 2017. Tillagan var auglýst frá 5. desember 2017 til og með 19. janúar 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Veritas lögmenn f.h. Raphael Steinberg dags. 17. janúar 2017 ásamt viðhengi og Friðþjófur Árnason og Líney Símonardóttir dags. 19. janúar 2018. Einnig er lagður fram tölvupóstur Smára Björnssonar dags. 13. mars 2018 þar sem umsókn er dregin til baka.
Svar

Lagt fram.