Þrílyft verslunar- og íbúðarhús
Skólavörðustígur 36
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 683
1. júní, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arwen Holdings ehf. dags. 13. mars 2018 ásamt bréfi dags. 13. mars 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.4, Lokastígsreits 4, vegna lóðarinnar nr. 36 við Skólavörðustíg. Í breytingunni felst að auka byggingarmagn á 1. hæð að suðvestur lóðarmörkum, nýta þakhæð 1. hæðar að hluta sem þaksvalir og stækka og hækka stigahúsið, samkvæmt uppdr. ARKHD dags. 12. mars 2018. Tillagan var auglýst frá 18. apríl 2018 til og með 30. maí 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: VERITAS lögmenn f.h. Raphael Steinberg dags. 17. maí 2018 og Friðþjófur Árnason, Líney Símonardóttir, Ívar Friðþjófsson og Freyja Friðþjófsdóttir dags. 30. maí 2018.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs