Framlengja þak og svalalokun
Austurberg 8-10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 700
5. október, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. september 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. september 2018 þar sem sótt er um leyfi til að framlengja þak yfir svalir og setja svalalokanir á allar íbúðir í húsi á lóð nr. 8 til 10 við Austurberg. Erindinu var frestað, umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lagt fram að nýju. Einnig er lögð fram umsögn skipulagfulltrúa dags. 4. október 2018.
Yfirlýsing og samþykki húsfélags Austurbergs 8 til 10 ódagsett, umboð frá Haraldi Helgasyni dags. 12. apríl 2018 og umboð frá Ingvari Engilbertssyni dags. 17. apríl 2018 fylgja erindi. Stækkun, nýtt B- rými: XX ferm. XX. rúmm. Svalalokun: XX rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2018 samþykkt.

111 Reykjavík
Landnúmer: 112265 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007391