Fjölbýlis- og verslunarhúsnæði
Hverfisgata 88A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 717
22. febrúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. febrúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja og breyta þriggja hæða húsi sem áður stóð við Hverfisgötu 92 og til að endurbyggja Hverfisgötu 90A á steyptum kjallara á nýrri lóð nr. 88A við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.
Stækkun, A-rými: xx ferm., xx rúmm. Eftir stækkun, A-rými: 716,8 ferm., 2.167,7 rúmm. B-rými: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019 samþykkt.