(fsp) svalir
Tjarnargata 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 619
3. febrúar, 2017
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Sjómannadagsráðs, mótt. 3. janúar 2017, varðandi breytingu á notkun 2. hæðar hússins á lóð nr. 10 við Tjarnargötu úr skrifstofu í tvær íbúðir. Einnig yrði söluturn í rými 0102 hluti af sameinaðri skrifstofu Happdrætti DAS á 1. hæð. Fyrirspurninni var frestað og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Bent er á að greiða þurfi fyrir eitt bílastæði fyrir hverja íbúð sem samþykkt er.
Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir breytingu á notkun í húsnæðinu.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100914 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023574