breyting á deiliskipulagi
Vitastígur 16
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 684
8. júní, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. mars 2018 var lögð fram umsókn Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf. f.h. Klittur ehf. dags. 27. febrúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits vegna lóðar nr. 16 við Vitastíg. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf. dags. 23. febrúar 2018. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. apríl 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102357 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015305