breyting á deiliskipulagi
Vitastígur 16
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 868
13. maí, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
485428
485570 ›
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. apríl 2022 var lögð fram umsókn Eiríks Kristjáns Gissurarsonar dags. 20. febrúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reitur 1.190.0, vegna lóðarinnar nr. 16 við Vitastíg. Í breytingunni felst að heimilt er að auka byggingarmagn fyrir smáhýsi á baklóð um 18 fm, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar dags. 16. febrúar 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Vitastíg 14a og Njálsgötu 41, 43 og 43a.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102357 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015305