breyting á deiliskipulagi
Vitastígur 16
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 697
7. september, 2018
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf. f.h. Klittur ehf. dags. 27. febrúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits vegna lóðar nr. 16 við Vitastíg. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf. dags. 23. febrúar 2018. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. apríl 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. júlí 2018 til og með 22. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust. Lagður fram deiliskipulagsuppdráttur Teiknistofunnar Tröð, dags. 28. júní 2018.
Svar

Grenndarkynning endurtekin með deiliskipulagsuppdrætti dags. 28. júní 2018.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Vitastíg 14a, 14, 15 og 17, Grettisgötu 42b og Njálsgötu 41, 43, 43a og 47.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102357 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015305