Reyndarteikning
Ránargata 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 628
7. apríl, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. mars 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. janúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að skipta fjölbýlishúsi í þrjár íbúðir og byggja svalir á suðurhlið sama húss á lóð nr. 21 við Ránargötu. Einnig er lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 24. mars 2017, ásamt bréfi Logos lögmannsþjónustu, dags. 17. mars 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir þinglýst samkomulag um afnotarétt á lóð milli húsa dags. 10. nóvember 1947, brunavirðing dags. 1. mars 1943 og samþykki sumra lóðarhafa Bárugötu 22, Ránargötu 19 og Ránargötu 23 og allra lóðarhafa Stýrimannastígs 7. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. desember 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. desember 2016. Gjald kr. 10.100
Svar

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.