breyting á skilmálum deiliskipulags
Hlíðarendi 20-26
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 693
10. ágúst, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. júlí 2018 var lögð fram umsókn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 27. júní 2018 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 20-26 við Hlíðarenda. Í breytingunni felst að valkvætt verður að byggja bílageymslu fyrir atvinnuhúsnæði á jarðhæð eða í bílakjallara, samkvæmt tillögu Arkþings ehf. dags. 15. maí 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr.7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.