Síkka glugga 1.hæð/suðurhl+svalahurð (skv. áður samþ.breyt. v/vesturhluta parhússins)
Nökkvavogur 11
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 607
28. október, 2016
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. október 2016 þar sem sótt er um leyfi til að síkka glugga á suðurhlið, koma fyrir svalahurð við hlið hans, stigapalli og tröppum út í garð, síkka glugga í kjallara að sunnan og vestan og koma fyrir nýjum glugga á kjallara á austurgafl í húsi á lóð nr. 11 við Nökkvavog. EInnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016.
Samþykki frá meðeigendum lóðar dags. 28. Júní 2016 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 21. september 2016 fylgir erindi. Gjald kr. 10.100
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016.